Don´t worry.. Be Happy!
Margt & Mikið..
FL�?�?â�?��?R�?�?�?DA BEIB�?�?�? !
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1735 dögum
16.09.2008 20:56:19 / erla_d

..Haustið skollið á, veturinn í nánd..

16. september



You life, you love and you learn.


Jæja vá.. er blog.central.is orðið alveg dautt eða hvað ? Mér finnst allar bloggsíður sem ég skoðaði hér áður fyrr dauðar og flest allir hættir að skrifa um sitt daglega líf á íslensku á íslenskar bloggsíður. Ég held að Myspace sé búið að taka við þessum stíl og flest allir hafi bara gleymt blog.centralinu. Ég hef þó ákveðið að sleppa mér ekki alveg, þó svo að auðvitað finnist mér gaman að vafra um á myspace og geri ekki lítið af því. Ég er þó komin á það eitt, að halda mér hérna megin líka. A.m.k með aðra rasskinnina ;)

Ég hef ekki bloggað síðan í sumar. Mér finnst það alveg agalegt. Ætla alltaf að taka mig á, en geri það svo aldrei. Hvurslags leti og kæruleysi er þetta segi ég nú bara ?

Sumarið mitt hefur verið rosalega fínt. Frekar rólegt, en þrátt fyrir það er nóg að gera. Ég vann í umönnun uppá Sjúkrahúsi. Þetta er besta vinna sem ég hef nokkurn tíman unnið, og þykir mér voða vænt um hana. Að vinna á svona stað kennir manni agalega mikið um lífið og framtíðina. Ég tel að allir sem starfa við svona starf þroskist heilmikið á meðan. Þú kynnist allskonar fólki, misveiku að sjálfsögðu og reynir þitt besta til að láta því líða vel og að það hafi það sem allra best. Fólkið er alveg frábært, og það sem er enn frábærara er að þessi vinna sýnir manni hvað fólk er rosalega sérstakt og yndislegt á sinn hátt. Verð að vinna þarna um jólin líka og hlakkar bara til að fara að vinna eftir jólaprófin og í jólafríinu.

Ég er svo auðvitað búin að vera með Maríasi mínum og gera allskonar skemmtilegt. Höfum ferðast svolítið, farið í útilegur, sumarbústaði, pössunarferðir og haft það notalegt.:)


Skólinn er svo bara byrjaður og voða stuð í gangi. Mér finnst þessi önn byrjar frekar rólega og vona ég að hún haldist bara svona í rólegri kantinum. Svo er það bara jólafríið, og svo útskriftarferðin 30.desember. Ji ég er varla að trúa þessu ... Hvað ég er orðin eitthvað stór stelpa.. Mér finnst ég enn 16.
Það er alveg komin smá spenningur í mann fyrir ferðina en þó líka smá kvíði.. Mér finnst svo mikið af flugslysum buin að eiga sér stað seinustu manuðina að ég er bara orðin hálf smeik. En þetta reddast;) Það gerir það alltaf.

Hef voða lítið að segja samt.. Er voðalega fáorð ákkurat núna. Allt annað en veðrið sem æsir sig eins og naut. Ég vona að það fari nú að róast.. Er ekki að fýla þessa rigningu og lætin í kringum hana. :S

Ég hef sleppt ákveðnu taki seinustu mánuði. Það hefur verið erfitt, og bjóst ég aldrei við að ég mundi geta þetta eitthvern timann. En koma tímar, koma ráð.. Og ákvað ég að sleppa. Þessi ár hafa verið mér svo erfið, en skemmtileg inn á milli. En alltaf komu tímar sem mér fannst ég vera einskis virði, og þráði svo innilega að finnast ég vera eitthvað mikið meira. Ég hlustaði aldrei á einn né neinn sem reyndi að ráðleggja mér, ég trúi bara því besta á hvern og einn. Og ég trúi því enn. Í öllum er góður eiginleiki og allir eiga skilið að vera elskaðir og hamingjusamir. Lífið er til þess að njóta þess, hlægja, gráta, fyrirgefa, elska og missa, gera mistök og bæta þau upp.. En við getum aldrei ætlast til þess að okkur sé fyrirgefið ef við gerum alltaf sömu mistökin aftur og aftur. Auðvitað er hægt að fyrirgefa, en ef endurtekningar verða í sífellu fer eitthvað að bresta innan í manni. Traustið farið, eyðilegging og særindi. En það sem maður getur staðið upp með er Sjálfsvirðing. Og með hana ætla ég að standa og lifa mínu lífi.

Ég sakna ykkar Kristófer og Sara..;* Og ég elska ykkur voðalega mikið.. knús til ykkar sætustu snúllurnar mínar.

Ég kveð ykkur í bili .. Hafið það gott :)

Knús og Kossar..

Erla Dröfn ;*


» 5 hafa sagt sína skoðun

25.06.2008 12:47:37 / erla_d

..Sumarblíða og sól..

25.júní



                                       We only got 4 minutes to save the world

Jæja, ætla að blogga hérna smávegis. Hef verið agalega löt eins og vanalega en ég verð að viðurkenna að ég er svolítið buin að gleyma þessum íslenska bloggheimi þegar myspaceið er komið. Verð KLÁRLEGA að fara að taka mig á.;)

Hafiði annars haldið í von alla ykkar ævi um að manneskja breytist til hins góða, og aldrei hlustað á það sem aðrir segja um viðkomandi manneskju vegna þess að þið lýtið svo upp til hennar og haldið svo fast í þá von um að viðkomandi muni eitthvern timann vakna úr draumaheim sínum og átta sig hlutunum, og sjá hlutina sem hafa runnið úr greipum hans alla hans tíð áður en það verður of seint ? Ég er búin að gera það alla mína tíð, alltaf. Ég hef alltaf elska og dáð manneskju af öllu minu hjarta. Reynt að gera allt til að "fitta" inní hans líf og reynt að vera sem minnst fyrir. Ég hef alltaf reynt mitt besta, gert mín brögð til þess að reyna að láta hana vakna og sjá.. Ég hélt alltaf að þetta mundi ekki hafa áhrif á mig, og ég gæti alltaf látið eins og ekkert sé. En því miður hafa draumar mínir brostið í tvennt og ég hef áttað mig á því að ég get ekki alltaf vonað og beðið eftir að hann vilji eitthvað með mig hafa. Það er ekki nóg að vera alltaf, og þá meina ég ALLTAF "frænkan" þegar ég er "dóttirin." Ég hef því gefið þetta uppí bátinn, í síðasta skipti. Og veit að mér mun líða betur eftir að ég hef lokað á þetta fyrir fullt og allt. Þetta hafði bara mikið meiri áhrif en ég helt að þetta mundi gera. 19 ár, er nægur tími til þess að breytast. En ég er hætt að vera lítill punktur, því ég veit að ég svo mikið meira skilið og ég er svo MIKLU meira en einn punktur.


Annars er byrjunin á sumrinu búin að vera æðisleg. Er í æðislegri vinnu sem mér þykir voða vænt um og hlakka til í að mæta í vinnu í hvert skipti. Svo er lífið bara svo æðislegt og ég er voðalega hamingjusöm :*

Hef eytt byrjun sumarsins í vinnu, með vinum, og sætasta stráknum mínum:*

Þar þar seinustu helgi fór ég til Eyja með Maríasi og fjölskyldu. Keyrðum og átum harðfisk og nammi á leið til Þorlákshafnar og fórum svo í Herjólf. Þar varð ég í fyrsta skipti sjóveik. Ég og Marías ákváðum að sleppa að taka sjóveikispillur, en hefðum betur átt að gera það. Vorum svo illt í maganum, en köstuðum þó ekkert upp þannig þetta bjargaðist alveg. Lágumst bara niður í kojur og höfðum það notalegt og þá lagaðist allt. Við gistum hjá fjölskyldu fólki og höfðum það voða nice í sér herbergi öllu bleiku og fínu! Brynhildur og fjölskylda og Fríða voru einnig uppi í sér herbergjum. Þetta var alveg æðislegt. Leikið sér i tölvunni fram á nótt og kúrt yfir imbanum. Svo var auðvitað farið með okkur hringinn i kringum Eyjuna. En Skúli sá um að leiðbeina og sýna okkur það helsta! Alveg æðislegt ! Ætlum klárlega að endurtaka þetta á næstunni :)

Seinustu helgi fórum ég og Marías í smá pössunarpíu ferð, og pössuðum Neróling. Kisann hennar Írisar frænku. Var rosalega notaleg ferð. Pöntðum okkur Pizzu fyrstu nóttina okkar og kembdum Neró eins og við ættum lifið að leysa. Fórum frekar snemma. Og á laugardeginum lá leið okkar í Blue Lagoon, Bláa lónið ! Ógeðslega NICE ! Vorum þar alveg í 3 tíma, frá fjögur til sjö. Eftir Bláa lónið fórum við svo út að borða og kúrðum svo yfir góðri mynd. Fórum svo í afmælið hjá Viktor á sunnudeginum í sumarblíðu og sól. Fengum þar góðar kærsingar og lögðum svo af stað heim á leið. Æðisleg helgi í alla staði

 

Svo er svona margt æðislegt og kósý búið að vera að gerast, en ég man bara það nýjasta ! Og skrifa það því hér.

Írskir dagar eru svo þar næstu helgi, verð í fríi alla helgina og ein heima. Þannig það verður bara nice sko ! Kannski að maður taki ÖRLÍTIÐ djamm :haha:

Annars vildi ég bara aðeins skrifa hér. Þessi útursnuningur hér að ofan er bara eitthvað sem ég varð að koma niður. Ég veit að hann les aldrei bloggin min hvortsem er.

Annars ætla ég bara að láta þetta gott heita og kveðja í bili.. Hafið það gott og elskið friðinn :* Ég ætla að reyna að sóla mig smávegis og hitta svo Marías ;*

Knús og kossar..

Erla Dröfn:*

 



» 4 hafa sagt sína skoðun

13.04.2008 16:33:26 / erla_d

Mánuður í sumarfrí... og 12 dagar eftir af skólanum

13. apríl



"Happiness isn't something you experience ; it's something you remember."

Jæja, mikið agalega hef ég verið löt að blogga hérna. Held að það hafi liðið jafn langt á milli færslna hjá mér og á þessu ári. Hálf skammast mín, en ég hef ekki verið að gefa mér mikinn tíma í að blogga, enda margt annað merkilegra í lífinu sem maður þarf að huga betur að :) Annars ætla ég ekkert að yfirgefa bloggheiminn strax, líður ágætlega hérna.

Trúi því ekki að þessi önn sé á enda. 12 dagar eftir af skólanum. Og mánuður þangað til að lokaprófið mín verða búin... Jesús minn eini!

Mér hlakkar svo til sumarsins, sumarbústaður með stelpunum 16.maí í tilefna prófloka, verður geðveikt!
Ég verð að vinna á umönnunardeild uppá spítala hjá gamla fólkinu, og kitlar mig alveg í tærnar við að hugsa um að fara að vinna. Hlakkar endalaust til. Fékk ágætis vinnulista, verð samt að vinna verslunarmannahelgina, 17 júní og svona. En frí alla írska daga. Mamma hans Maríasar lagaði aðeins töfluna fyrir mig til að gera hana aaðeins sætari ;*

Já, ég fór ekki á Akureyri. Fór í fyrra og fannst agalega gaman. En ákvað að fara ekki þetta árið, var frekar hérna á Akranesi með Marías mínum og hafði það agalega notalegt. Ég held að það sé líka betra að hafa ekkert farið, þar sem flestir eru örugglega útúr þunnir og þreyttir eftir helgina. En í staðinn er ég bara sprellandi fersk og kát ;)

Sem minnir mig á það, að ég horfði á keppnina í sjónvarpinu. Og mikið agalega var þetta léleg keppni þetta árið. Ég gat ekki hugsað mér einn keppanda sem myndi vinna þetta. Ég var hálf hissa og kom þessi keppni mér algjörlega í opna skjöldu.. Vanalega eru 2-3 sem skara framúr, en ekki í þetta skiptið. En Akranes stóð sem samt með prýði og setti stuðið í þessa keppni. Enda flestir með róleg ástarlög !

Ég held samt að myspace, hafi tekið völdin yfir blog.central.is. Það er aldrei commentað á blogg lengur, heldur er öllu skellt yfir á myspace. Ég er ekki að segja að ég sé saklaus í þeim efnum, þar sem myspace hefur algjörlega stjórn á mér. Ætla samt að reyna að halda mér við íslenskuna og blogga hérna annars lagið.

Ég hafði þó agalega lítið að segja, eiginlega bara smá röfl .. Vildi bara segja eitthvað til þess að láta vita að ég sé ekki hætt hérna í centrinu góða:haha:

Ætla að hætta í bili, kem með eitthvað betra næst :)

Hafið það gott ;*

Erla Dröfn


» 2 hafa sagt sína skoðun

22.02.2008 18:25:15 / erla_d

..Nei, ég er ekki týnd og tröllum gefin

22. febrúar



                                              Sometimes doing something is worse than doing nothing

Jæja, já kvartið kvartið. Ég hef verið agalega léleg og löt seinustu daga, eða mánuðinn ! Hef ekki sest við tölvu og bloggað í u.þ.b mánuð. Ég er agalega léleg, ég veit...

Annars er er lífið og tilveran bara eins og hún á sér að vera. Allt gengur á afturfótunum, svo daginn eftir gengur allt á framlöppunum og svona gengur að koll af kolli. Og þannig á lífið að vera, væri ekkert gaman ef allt væri alltaf frábært, og engar hindranir á vegi manns. Þá kann maður ekki að meta loksins þegar eitthvað gott gerist :)

Hef samt annars verið að velta því fyrir mér. Þið vitið þegar maður var lítill.. vildi maður ekki alltaf vera frægur ? Þú veist, vera voða sæt og flott söngkona eða leikkona og allir þekkja mann... (Allavega var ég þannig). En ég hef verið að velta því fyrir mér að ég held að þetta fólki lifi ekkert agalega frábæru lífi.

Bara svo ég taki dæmi með Britney Spears sem hefur ekki aðeins misst forræði á börnum sínum, heldur SJÁLFRI SÉR LÍKA. Ég tel hana hafa orðið fræga of fljótt, og fengið alltof lítið einkalíf og bara fengið áfall.

Amy Winehouse sem er nú í meðferðum, sprautufíkill, búið að taka margar upptökur af henni dópandi, með ör á sér, blóðuga og fleira eftir fíknifenaneyslu. Í dag liggur hún reyndar á meðferðarstofnun og er að reyna að taka sig saman í andlitinu.
Heath Ledger er nýlatin, Michael Jackson varð og er nú bara eins og hann er, Elvis Presley, Marilyn Manroe og Lindsay Lohan og get ég talið lengi áfram.

Tek það þó fram að þetta eru allt stjörnur sem hafa gert margt gott af sér og með hæfileika sem fáir hafa. En frægðin var þeim flestum að falli (hvort sem þau séu dáin eða ekki, en fallinn á ýmsa vegu sem tengjast bæði neyslu og geðveiki)


En auðvitað hafa sumar stjörnur að voða gott og fleira. Þær sem kunna að höndla frægðina. Annars held ég að það sé bara lang best að eiga sitt einkalíf, eiga raunverulega ást og kærleika, geta farið útí búð ómáluð án þess að ljósmyndarar elti mann og eigi ekkert ALLTOF mikið af peningum, nema maður kunni að fara með þá :haha:

Annars skólinn er bara eins og hann er. Agalega fínn. Styttist í að hann fari bara að klárast hjá mér, eða rúmlega ár í það :lol: Þannig að maður er byrjaður að safa fyrir útskriftaferðinni langþráðu með að vera í gæslu og selja klósettpappíra og fleira 8)

Ætli ég kveðji ykkur samt ekki í bili.. Er agalega tóm í hausnum eitthvað núna ! En þetta var nú eitthvað smá sem ég ritaði hérna á skjáinn...

Vildi líka senda Þorvaldi og Halla Már alla mína hlýju og vona að allt fari á besta veg ;* 

                                               Kveð ykkur í bili krútt ;)

Knúses og kossar ..

                                                           Ykkar, 

                                                       Erla Dröfn;*


» 2 hafa sagt sína skoðun

08.01.2008 22:16:24 / erla_d

..Skóli, skóli og enn meiri skóli..

8. janúar. 2008

 



She's got me lovestoned.. I think that she knows.

Hæ púngar :lol:

Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir það gamla til ykkar sem fylgjast með mér í bloggheiminum.. og auðvitað raunverulega heiminum líka !

Hef verið agalegt löt, alltof löt ! Og ég hálf skammast mín. En jólin eru víst hátíðar ljóss og friðar, og hef ég svo sannarlega nýtt mitt jólafrí í frið og rólegheit. Hitta vini, kunningja, fjölskyldu og vera í faðmi þeirra sem mér þikir vænt um.

Er svona enn að koma mér í rétta farið aftur, þar sem farið var að sofa 4 hvert einasta kvöld og vaknað um 3 næsta dag með Skúlason:* En það er bara óskup notalegt og þetta má víst á jólunum og í fríinu.

Ætla svosem ekkert að blogga neitt rosalegt núna, en fannst rétt að láta aðeins vita af mér þar sem nýtt ár er gengið í garð, enn ein önnin í FVA búin og enn ein önnin byrjuð.

Náði öllum prófum, voðalega sátt með lífið. Þar sem ég var ansi mikið farin á tærnar þegar nær dró að prófum en svo blessaðist það allt saman og einkannirnar mjög fínar :P

Fór í matarboð í fyrradag hjá Marías. Agalega góður matur og yndislegur dagur alveg hreint! byrjaði á því að vakna og fara með Marías og Viktor litla frænda hans að kaupa rakéttur, hversu mikill peningur fór í það segi ég ekki hérna. En karlar eru víst agalega skotnir í þessum sprengjum ;) Eftir það klæddi ég mig aðeins upp og kom Marías að ná í mig voða fínn og fórum heim til hans að sprengja með allri fjölskyldunni, borðuðum góðan mat, spjölluðum og héldum svo áfram að sprengja ! Agalega notalegur dagur, sérstaklega svona rétt fyrir skólann:D

Já, annars er það bara skóli skóli skóli skóli núna.. Það er alltaf hriiiikalegt stuð ;)

Svaf lítið í nótt, veit ekki afhverju en ég vaknaði glaðvöknuð um 2 leytið og sofnaði ekki aftur fyrr en um 6. Var ekki sú hressasta þegar ég vaknaði, en ég er öll að koma til núna !

Er samt agalega þreytt og er að pæla að kveðja ykkur í bili.. :|

Ég veit, þetta er ekkert besta færslan.. en ég setti þó eitthver orð til að láta vita af mér.

Knús&Kossar ;*

Erla Dröfn


» 4 hafa sagt sína skoðun

27.11.2007 22:39:39 / erla_d

..Skólahúsið, bílprófið & Hafragrautur..

27. nóvember

Don't act like I never told you.

Hæ ungir, gamlir, nýjir og notaðir!

Stóð allavega við mitt, næsta bloggfærsla kom þegar BÍLPRÓFIÐ VÆRI KOMIÐ Í HÚS ! OG VITI MENN, haldiði ekki að ég hafi skellt mér á eitt svoleiðis í dag! LOKSINS lét ég verða að þessu, þetta hefur angrað mig í alltof langann tíma en vegna prófstress og hættu um að falla hef ég aldrei látið að því verða fyrr en núna ! Þannig að núna er ég komin á brumma og brumma niður göturnar á litla sæta Yariznum okkar mömmu. Rauða Jóla bílnum okkar ;) Ég er hæst ánægð með lífið og tilveruna og hafa loksins tekið þennan áfanga í lífinu, þýðir engann aumigjaskap lengur ! Bara kýla á þetta !

Kíkti rúnt áðan með Kristíni Þóru minni. Hún fékk semsagt þann heiður að fá að vera fyrst að setjast með mér í bíl. :haha: Skemmtum okkur voðalega vel, hlógum sungum hástöfum og spjölluðum um lífið og tilveruna. Hún er alltaf svo mikið æði þessi elska :*

Alllavega, ég á að vera að fara í efnafræðipróf á morgun. Hversu léleg er ég? Sit hérna að blogga og les ekki einn staf fyrir efnafræðina. Skamm Erla, Skamm. Held að ég hafi tekið allt prófstress og samviskusemina í mér fyrir þetta bílpróf, hef vart sofið í 4 daga vegna stress við að taka verklega prófið.

....Getið ekki ímyndað ykkur hversu vel ég á eftir að sofa í nótt, mmmm mm :)

Jólagjafir ! Hvað á ég að gefa i jólagjafir? Hjálp. Ég veit ekki neitt.

Ég veit ekki einu sinni hvað mér langar sjálfri að fá í jólagjöf. Ást og hlýju frá vinum og vandamönnum er nóg.. Og þó, ætli maður vilji ekki fá smá pakka og spennu á aðfangadag.

Svo auðvitað opna pakkann sem maður fær frá Sveinka gamla á aðfangadag, það er alltaf voðalega spennó;)

Skólinn er að klárast, trúi því nú varla. Er hálf hlægjilegt allt saman. Ekki nema 3 dagar eftir af skólanum og ég er strax búin að ná 3 áföngum sem eru próflausir og er ég hæst ánægð með þá niðurstöðu.

Fer svo í 4 lokapróf, en ég held að ég sé ágætlega vel stödd og krosslegg fingur og vona að Guð sé sammála mér í því líka :D

Íris og Margrét fara svo að koma á Íslandið góða í desember.. Verður gott að sjá frænkur sínar aftur og spila saman eitthvert kvöldið !! Ég heimta það ..

Hlakka líka ÝKT mikið til að fá þig Ragnheiður :( Saaakna þín.. :* soldið soldið mikið smá!

Hef annars voðalega fátt að segja núna, er hálf þreytt .. sérstaklega i hendinni ! Held að ég sé búin að vera of mikið i tölvunni og ég sé komin með harðsperrur í puttana. Ooo-ó :|

Kveð ykkur bara i bili litlu mýs;* Hafið það gott..

Knús & kossar á línuna ..

ÉG HEIMTA COMMENT Á ÞETTA BLOGG ! Annars er mér að mæta.. ;)

Erla Dröfn .. ;*


» 10 hafa sagt sína skoðun

13.11.2007 19:31:26 / erla_d

..Bílpróf, Skólahúsið og Kuldi..

13. nóvember

You can save me from the man I've become.

Hæ Gullagull..:)

Ákvað að skrifa eitt blogg, þar sem ég hef alltaf verið að koma mér í gírinn fyrir það en enda svo alltaf á því að gera eitthvað allt allt annað.. Meiri heigulshátturinn í mér, auðvitað þarf ég að sinna þessari síðu minni eins og öllu öðru. Eitt er þó jákvætt ! Ég hef fengið nóg af commentum sem iljar mér alltaf um hjartarætur.

Jæja, bílprófið ! LOKSINS ! Nei, ég er ekki komin með það, en ég er alveg á leiðinni að fá það. Féll í bóklega í dag, frekar svekkjandi. En við vorum 15 samtals og aðeins 1 náði prófinu. Hversu fáránlega asnalega bjánalegt er það? Nei já, ég bara spyr..:|

Tek það aftur næsta þriðjudag og einnig verklega, eða á föstudeginum EF ég næ þessu bóklega. Úffúff, krossleggja fingur með mér. Það er löngu komin tími á mig að fá bílpróf og finnst hálf ósanngjarnt að það sé svona erfitt loksins þegar ég ætla að fá það ! En ég næ sem fyrst. Lofa !

Helgin fór í bústað til Röggu, Freyju og Láru. Þær voru að halda uppá tvítugsafmælið sitt - NEI djók. Hljómaði spúkí, ekki satt stelpur? En aðeins tvö ár í þennan aldur.. hversu fáranlegt sem það hljómar allt saman. Við erum að verða gamalmenni með lafandi brjóst og appelsínur á húðinni okkar útum allt;) Sexy mommas ! Þó efast ég ekki um að við verðum jafn liðugar og lausar og þetta !

Bústaðurinn var annars frábær og skellti ég með Kristíni sem ökumanni og Lísbet og Evu Laufey. Stoppuðum i Hyrnunni fengum okkur gómsætan mat. Þar á meðal bað ég um VEL STEIKTANN hamborgara og fékk hann rauðann og sætann. Já borðaði heldur meira af frönskunum en ég ætlaði mér..

Komum í bustaðinn og voðalega notalegt, fór í lopasokka og töluðum saman og smökkuðum bollur, Óáfengar. Auðvitað ;) Svo komu Valdís Ökumaður, Lena og Katrín ! Svo var farið í pottinn, öskrað á stráka langt fram eftir nótt og auðvitað tekinn hópsöngur. Seinni hópurinn skellti sér svo heim um 1 leytið, og ég, Kristin, Freyja, Lára og Ragnheiður áttum rólega og góða kvöldstund sem eftir var.

Laugardagurinn var rólegur, hitti hana Valdísi mina og rúntaði svoldið með henni. Sáum slagsmál og sungum hástöfum!:haha:

Sunnudagurinn fór í ökuferð til Reykjavíkur þar sem ég stóð mig með prýði. Auðvitað! Drap þó einu sinni á bílnum en ég tel það vera sálarlífi mínu og stressi að kenna. Það gerist ekki aftur :)

Ball á Breiðinni á laugardaginn, 18 ára og eldri inn ! Lítill fugl sagði mér að Páll Óskar ætti að þeyta skífum. Held að rass minn muni eiga heima á Breiðinni á Laugardagskvöldið, ykkur er velkomið að joina ;)

Hef annars voðalega litið segja. Ætli ég bloggi ekki næst með leyfi til þess að keyra bíl ? :haha: Mörgum til mikillar ánægju, veit ekki hvað ég er búin að lofa af mér mörgum rúntum ! Ég verð flatrass eftir þennan áfanga ! VÚÚÚÚHÚ !

Kveð ykkur í bili músaskinn. Hafið það ótrúlega gott. Ekki á morgun, ekki hinn heldur hinn er helgi og það þýðir bara eitt ; Sofa út, kúra, njóta lífsins og nammiát!

Knús og kossar á línuna.. 

stuhamstrar.jpg picture by erlan89

Ykkar,

Erla Perla;*


» 5 hafa sagt sína skoðun

28.10.2007 19:01:13 / erla_d

..Snjór, djamm og helgarfrí..

28. október

Can you keep up? Baby boy, make me lose my breath. Hit me hard, make me lose my way!

Hæ kjúllar:*

Bahh, frábær helgi á enda! Hefur verið nokkuð skrautleg og grætt hef ég heilann helling af peningum !

Föstudagurinn fór í hitting með nokkrum skvísípæjum. Fengum okkur í glas, átum á okkur gat af Pizzu og spiluðum eins og vitleysingar Party og co. Mikið hlegið og mikið glens og gaman .. Komu svo strákpjakkar í heimsókn vel í því og búnir að eyða nokkrum þúsund köllum í inneign, og fékk ég 10 500 króna inneignir frá ogvodafone. Mér til mikilllar ánægju.. haha ! Ég á semsagt nóg af inneign í augnablikinu, sömuleiðis Freyja og Ragnheiður ! HAHAH:lol:

Kíkt var svo á Mörkina eftir spilið og dansað og skemmt sér þar til 3, og þá skellt sér heim ;)

Gærdagurinn var skrautlegt. Segi ekki mikið meira um það !

Elska Sex and the City, held að allar stelpur kannist við sig í hverri og einni þeirra ! Allar svo ólíkar, en samt svo líkar. Með sama vandamál, með sömu spurningar! Held að strákar hafi líka ansi gott að horfa á þær..

Búin að taka lífstil minn á ! Borða 2 ávexti á dag, eitt gróft brauð, og nog af vatni á dag ! Fara eftir fæðuhringnum bara, það er lang best. Auðvitað tekur maður líka lýsi til að vera hraustur einsog Stjáni Blái og Íþróttaálfurinn...:P

Hef svosem ekkert mikið að segja meira á þessari stundu.

Ball næstu helgi! Vúbbídú.. Nýdönsk að spila og svona skemmtilegheit. Ragnheiður að koma og allt að gerast næstu helgi ! AAAAALLT að gerast 8)

Talandi um að ALLT sé að gerast... ÓLI GEIR er svo að taka við Breiðinni, og opnar hún 17. nóvember. Hlakkar mér til? Já! Hef beðið eftir þessualltof lengi, og loksins tekur eitthver almennilegur við þessu og gefur manni annan kost að djamma á Akranesi en að vera með Pólverjaperrum sem halda manni liggur við fastri og áreita mann á Mörkinni. Allavega ætla ég að verða góður gestur Breiðarinnar. Enda ekkert ófrítt fólk sem mun sjá um þetta.. Óli Geir er natturulega bara fyrrverandi Herra Ísland.. En það skiptir ekki öllu ;)

Er hálf kvefuð, hef reyndar verið það í 2 vikur.. Voðalega skemmtilegt. Vantar eitthvern til þess að hlýja mér og koma með popp og spólu handa mér ? Góð verðlaun í boði.... :haha:

Ætli ég kveðji ekki bara í bili lovs,

Hafið það ótrúlega gott og hugsið vel um það sem þið eigið..

Picture1163.jpg picture by erlan89

Knús&Kossar á línuna...

ÖrlíPörlí:*


» 12 hafa sagt sína skoðun

21.10.2007 17:21:40 / erla_d

..Kuldi, frí og útsvefn..

21. október

Never wait.. It'll be to late.

Hæ skonsur mínar:*

Jæja, hef fátt að gera á þessum sunnudegi þannig ég ákvað að láta vita að ég væri heil á húfi.. ;)

Komið miðannafrí, agalega notalegt að geta sofið út og farið að sofa þegar maður vill. Þó svo að ég hafi farið að sofa frekar snemma öll seinustu kvöld. Ætli þetta sé ekki bara uppsöfnuð þreyta sem maður losnar við með öllum þessum svefni.

Skólinn er eins og í sögu.. Erfiður en hann skýst áfram eins og elding ! Gengur vel í öllum fögum, er að fara á prófkvíða námskeið þannig ég geti kannski farið að taka þetta blessaða bílpróf og hætt að kvíða fyrir hverju einasta prófi sem ég á að taka. Verð að losna við þennan kvíða.. Ég er svo mikil mjása í sambandi við próf.. Ég veit, það er minn veikleiki. Þið náðuð mér ;)

Mamma og ég vorum að fá okkur nýjan bíl. Yariz, alllgjöra dúllu! Voðalega skvísulegur og algjört mömmulíng! Hann er líka alveg eeldrauður, þannig við erum eins og litlar jólasveinakonur á sæta jólabílnum.

Ég elska brauðstangir af Dominos. Gæti borðað heilann poka af þessu .. Þær eru hættulegar.

Fór í sjoppu í gær, sem er svosem ekki frásögusegjandi nema hvað að það var strákur að afgreiða í henni! Mér fannst þetta alveg æðislegt! Ótrulega skemmtilegur og kurteis. Gaf mér RISA stórann ís með lakkrískurli og númerið sitt á servíettu! Annars var mér mikið hugsað til hversvegna svona fáir strákar vinna í sjoppum og leikskólum. Er þetta eitthvert karlmennsku merki að vinna ekki á þannig stöðum? Égheld að flestar stelpum væru bara ánægðar með að sjá strák knúsa litla krakka á leikskólanum og afgreiða sig í sjoppu og brosa til manns, heldur en að vera keyrandi á trukkum og vörubílum allan daginn og umgangast bara karla og segja "konubrandara" allan liðlangann daginn.. Satt best að segja finnst mér þetta bara dáldið sexý.. Sjoppur og leikskólar;)

Held ég kveðji ykkur í bili ástir;*

Kallið mig klikkaða, en leikskólar og sjoppur eru greinilega annað veikleika merkji hjá mér;)

Simona
I guess i know this
We seemed so strong
We've been there and gone

Simona
Wish i was sober
So i could see clearly now
The rain has gone

Simona
I guess it's over
My memory plays our tune
The same old song

-James Blunt - 1973

Knús og Kossar..

Ykkar,

ErlaDröfn:*


» 5 hafa sagt sína skoðun

08.10.2007 16:21:22 / erla_d

..Lærdómur, ball og rólegheit..

8. október

Behind this smile, Is everyting You'll never understand.

Hæ gull:*

Úff, veit að ég hef ekki bloggað allltof lengi. En ég biðst formlega afsökunar á því en get þó ekki kennt neinum það í þetta skiptið nema sjálfri mér. En auðvitað á skólinn dulítinn þátt í því líka.. nenni þó ekki að röfla um það núna;)

Hef verið ein heima síðan á sunnudaginn í seinustu viku. Voðalega notalegt. Marías hefur þó verið að passa Erlu sín og verið hjá mér. Voða indælt að vera bara tvö í koti ... mjaá. Marías verður svo einn heima í næstu viku þannig þetta er ekkert nema æðipæði:*

Skellti mér á ball á laugardaginn. Voðalega skemmtilegt. Hittumst nokkrar stelpur hjá mér og drukkum dálítið öl, flakkaði margt og mikið og sumar lágust á gólfið og gerðu æfingar eða prufur sem allar stelpur ættu að gera á ævinni. Kem því þó ekki fram hvað hún hét, en þetta er skemmtilegt og fræðandi ! Var fámennt en þó góðmennt.

DSC03398br.jpg image by erlan89DSC03400.jpg image by erlan89DSC03426.jpg image by erlan89

Fór frekar snemma heim af ballinu, var orðin hálf veik.. Sofnaði um half 4, og vaknaði svo seinna um kvöldið þegar litla dýrið skreið uppí rúm :* Töluðum smá saman, og vorum nú ansi fljót að sofna.. Enda bæði orðin dauðþreytt!

Vöknuðum seint seint á sunnudaginn. Marías pantaði pitsu og brauðstangir og var það voða gott í mallakút. Lágum svo í leti það sem eftir var kvölds og dags og vorum þar þangað til við sofnuðum aftur :lol: Löt erum við...

Sit heima með halsbolgu, beinverki, smá hita og nefkvef.. Ekki skemmtilegt. Þannig ég fékk að lúlla í rúminu á meðan Marías vaknaði og fór í skólið ..

Á að vera að læra undir þýskuprof, en hef ákveðið að sleppa því bara. Get ekki skilið þessa þýsku betur. Þýðir ekkert fyrir kennara að henda bara verkefnum í mann og hjálpa manni svo ekkert. Ævar Buthman er samt alveg fínn... En ég er ekkio stolt af þessum aðferðum hans við kennslu.

Ragga pjása kemur svo á fimmtudaginn, hlakkar til að knúsa þá skottu :* mússímúss!

Ætla að segja þetta gott í bili, skella mér í heitt bað og fá mér svo að snæða örlítið í mallakút :)

Knús og kossar á línuna..

Ykkar,

Erla Dröfn:*


» 8 hafa sagt sína skoðun

12.09.2007 21:13:02 / erla_d

..Rigning, skólinn og Afríka..

12. september

Should I ? Would I ? Could I ?

Hæ krútt :*

Er voðalega fáorð núna, en ákvað þó að drita eitthverju hérna niður þar sem ég sit hér nýkomin úr baði og hlusta á rigninguna dynja á rúðunum..

Skólinn er æði. Er í 21 einingu en þó finn ég ekki enn fyrir stressi. Að sjálfsögðu er nóg af heimavinnu en maður verður bara að skipuleggja tímann sinn samkvæmt náminu og það er það sem líf mitt er búið að snúast um þessa helgi og þessa viku.. Frábært alveg hreint.

Mamma sæta bauð mér og Ömmu Guggu á Ladda-Showið á föstudaginn. Agalega skemmtilegt og mæli ég með þessari sýningu. Þessi maður er alveg einsdæmi ! Það sem hann getur breytt sér á no-time og verið allt önnur persóna á svo stuttum tíma.

Mér finnst alveg með einsdæmum hvað við fáum mikið af rigningu og njótum hennar ekki neitt. Það er kannski gróðurinn sem nýtur sín þegar hún kemur. En fólkið í Afríku fær ekki einn dropa. Þó svo að það mundi hjálpa þeim heilann helling. Það gæti bara sett fötu út fyrir litla kofann sinn og átt byrgðir af vatni daginn eftir.. Óréttlátt að við fáum alltof alltof mikið og þurfum ekki á helmingum af þessu að halda. Mikið agalega vildi ég að við gætum gefið með okkur.. En það er frekar erfitt þegar rigning er til skiptanna.

Annars er ég harðákveðin að ég ætla út til Afríku þegar ég er búin að læra hjúkkuna. Í hjálparstarf. Það er eitthvað sem mér hefur dreymt um síðan ég var lítil. Getiði ímyndað ykkur gleðina að halda utan um barn sem aldrei/sjaldan hefur fundið fyrir ást og umhyggju, gefið barni að borða þannig það verði satt og ekki íllt í mallakút lengur af hungri, gefa þeim eina sprautu og þau gætu lifað góðu lífi með fjölskyldu sinni eftir það.. og svona gæti ég lengi talið..

Er voðalega rigningarleg í skapinu mínu núna.. Enda er ég alltaf í stíl við veðrið í skapinu.. Er farið að verða óhugnalegt ;) Ef það er sól, þá er ég sæl og hress.. Ef það er rigning þá er ég löt og hálf skrýtin öll. :$

Annars er ég að fara til Ragnheiðar minnar á næstunni til Akureyar, gista og djamma saman.. Komin góður tími á það.. Sakna þessarar pjásu alltof mikið ;*

En ég held að ég kveðji ykkur í bili.. Afsakið ef ég röflaði eitthvað um og of.. En ég kenni rigningunni alfarið um það ;)

np; U2 - One

Ykkar,

Erla Dröfn ;*


» 5 hafa sagt sína skoðun

30.08.2007 19:00:35 / erla_d

..Flensa, skóli og læti..

30. ágúst

You give me the feel I've been longing for.

Heyy ástir !

Vildi bara aðeins láta heyra í mér. Hef líka ekkert að gera þar sem ég sit heima í flensu. Hversu frábært er það ? Að fá flensu rétt fyrir busaball og busavíxlu.. :| Ég verð samt ekki veik á morgun, búin að plana búðarferð og fleira með Freyju minni. Og auðvitað búin að plana að skemmta mér aðeins á morgun. Ví.

Skólinn er byrjaður á fullu og lýst mér bara ágætlega á þetta allt saman. 3 lokapróflausir áfangar, sem gerir það að verkum að ég fer aðeins í 4 lokapróf. Hversu frábært? :D

Helgin mín var æðipæði. Mest allan tímann láum ég og Marías minn í leti og höfðum það voðalega notalegt. Á milli þess sem við skutumst á rúntinn. :* Alllgjörir letingjar. En það má einu sinni og einu sinni.

Mikið agalega er Dr.Phil gáfaður. Getur hjálpað 7 mjööög erfiðum og þunglyndum konum í að koma sér í rétta farið aftur... Og öllum í einu ! Hann hlýtur að vera Jesús númer 3. :lol:

Þetta er leiðinleg færsla hjá mér, ég veit. En það er kannski vegna þess að það er ekkert merkilegt að frétta af mér. Allt í blóma og voða ánægð með lífið og tilveruna (fyrir utan flensuna).

Held ég hafi fátt að segja nema njótið helgarinnar í botn og þið sem eruð að fara á ball ; MUNIÐ AÐ GERA EKKERT SEM ÉG MUNDI EKKI GERA ! ;)

Kveð ykkur í bili gullagull, og veriði nú dugleg að láta heyra í ykkur. Finnst agalega leiðinlegt að blogga og heyra aldrei frá ykkur.  Skammskamm.

Ykkar,

Erla Dröfn:*


» 5 hafa sagt sína skoðun

16.08.2007 18:03:10 / erla_d

..Gleraugu, sól og sumarylur..

16. ágúst

And even the small simple things,, can make you run away.

Jiminn einasti. Ágúst mánuður er meira en hálfnaður og skólinn er bara í næstu viku, takk fyrir takk !

Hlakkar bara pínulítið til. Mest hlakkar mér þó til að fara í keppni við sjálfan mig og standa mig í öllu sem ég legg mér fyrir hendur. Verður erfið önn, en það þýðir ekki að gefa árar í bát heldur bara sigla á fleygiferð áfram.. Þetta verður fljótt að líða.

Þetta er semsagt síðasta helgin fyrir skólann góða. Hvað gera menn ? Ég hef ekki enn ákveðið mig, sem kemur ykkur líklega ekki á óvart. En ætli ég verði ekki að spjalla aðeins meira við Marías um það allt saman ..;)

Var að fá mér myspace. Lýst ágætlega á það ! Þó svo að ég sé algjör auli í þessu svona fyrst, en það kemur allt saman .. Eða það vona ég. (http://www.myspace.com/erla_d)

Hitti ástirnar mínar Kristófer og Söru um helgina, get ekki skrifað í orðum hversu yndisleg þau eru. En þau eru allavega yndi yndanna. :*

Hitti Marías minn svo á sunnudeginum, lúlluðum og tókum gott kvöld í að horfá kvikmyndir. Þessar týpísku, eins og Armageddon. Vaknaði svo um 12 þegar Marías kom úr vinnunni og kúraði smá með honum, svo fór hann aftur að vinna þannig ég spjallaði við mömmu hans í .u.þ.b hálftíma áður en ég fór heim. Æði:*

Ragnheiður mín er að fara eftir 5 daga ! úffípúff. Það verður leiðinlegt. En ég heimsækji hana auðvitað, og fer á vímuefnalaus böll og fleira... ;)

En annars.. ég var að fá gleraugu ! Jépp, GLERAUGU ! Þetta er víst eitthvað sem ég þurfti á að halda, til þess að hausverkurinn minn fari. Annars er ekki víst hvort þetta séu augun sem orsaka þennan hausverk, eða bara mígreni. (Vonum bara það besta;))

Kvöldið í kvöld fer í að vera með Maríasi mínum og kúúúúra :)

Farin að skipta um á rúminu og svo í Bað !

Farið vel með ykkur lömbin mín.

 

Ykkar,

Erla Dröfn:*gleraugnaglámur.


» 4 hafa sagt sína skoðun

07.08.2007 21:19:30 / erla_d

..Fyrsta ágústhelgin, skólinn að byrja og sumarið að verða búið..

7. agúst

 



Hold me tight and bury me deep inside your heart.

Hey lovs.

Trúi varla að sumarið sé að verða búið.. 15 dagar í að skólinn byrji. Sem gerir það að það eru 18 vikur í lokaprófin og 20 vikur í Aðfangadag og 21 viku í NÝTT ÁR ! Jiiiminn eini. Hversu flippað er það ?

Annars var mín verslunarmannahelgi með þeim rólegustu sem ég hef upplifað. Fór ekki neitt í útilegu en skemmti mér samt alveg ágætlega. Hittumst nokkrar heima hjá Freyju á föstudagskvöldið og fengum okkur í aðra tánna.. Og skemmtum okkur konunglega og ég held að upptökumaður Sex in the City hafi orðið nokkuð ánægður ef hann hefði fengið að sitja og taka okkur upp, myndum KLÁRLEGA taka við af hinum géllunum ;) (Eða allavega komast nálækt því) Eftir það rölti ég bara heim til Maríasar og lúllaði hjá mínums..:*

Laugardagurinn snérist um að hjúkra ömmu Erlu, sem var veik heima með hita og alles. Leið frekar illa að sjá hana veika, þar sem hún er aldrei veik og án efa hressasta amma á landinu. En henni var batnað daginn eftir... og tel ég það vera útaf mínum Töfrahöndum ! :haha:

Á sunnudeginum var ég með Maríasi, horfðum á nokkra Friends þætti, og tókum svo rúnt að hitta Palla og Kéla sem voru grafnir inní bílaverkstæði að setja græjur í bílinn hans Kéla. Stoppuðum þar í alveg klukkutíma og tókum meðal annars Pílukast sem ég RÚSTAÐI Maríasi í ;) Eftir það kúrðum við bara og lúlluðum.

Hitti Ragnheiði mína í gær.. Saknaði hennar ekkert smá. Ekki búin að hitta hana í 4 daga. Hvernig á ég eftir að vera þegar hún fer til Akureyrar? :( búbúbú..

Mamma bauð mér svo í vax og litun og plokkuð áðan.. Lýst bara ágætlega á þetta ! Er allavega ánægð með útkomuna:) Fer pottþétt aftur á næstunni..

Eftir það skellti ég á mig djúphreinsimaska.. og sat hérna i 10 min öll græn og sæt í framan. En varð lika eins og barnrass eftir það. Mæli með þessu, klárlega.

Kristófer og Sara eru að koma til Reykjavíkur á föstudaginn, og verða 2 daga. Get ekki beeeðið eftir að knúsa englana mína ! Sakna sakna sakna þeirra ofsalega mikið.. Vildi óska að ég gæti haft þau hjá mér.. Bara ALLTAF.

Februar2007016_edited.jpg

Svo liggur leið mín til Reykjavíkur á morgun. Hitta Auði mína. Ætlum sko að hafaða notalegt og njóta þess að hittast eftir ALLTOF langann tíma. Hlakka til að hitta þig elskan mín ;*

Held ég kveðji í bili með sól í kviði...

np; HIM - Right Here In My Arms

Ykkar,

Erla Dröfn;*


» 4 hafa sagt sína skoðun

31.07.2007 20:38:46 / erla_d

..Epli í heilt ár, sumarfrí og nammiát..

31. júli

My body is saying "let's got" but my heart is saying "no."

Hey looovs.

JESÚS MINN EINI. Vil byrja á einni frétt sem skefldi mig alveg niðrí táslur!

Um daginn heyrði ég frétt sem um epli sem heita "Stay-Fresh" eða eitthvað álíka. Þetta eru epli sem eru meðhöndluð þannig að þau lýta úr fyrir að bragðast eins og fersk epli í HEILT ÁR !8| Þau eru til sölu í USA. Og eru nokkur evrópulönd að biðja um að fá sendingu með þessum eplum .. Þar á meðal Danmörk ! Ég krosslegg bara fingur og vona að Ísland gerist ekki það heimsk, og fari að apa eftir Bandaríkjamönnum í þessu sambandi .. ojj bara.

Annars er voðalega fátt að frétta af mér þessa dagana. Hef bara verið að vinna, auk þess sem ég skýst uppí bústað með Ragnheiði, Hitti Marías ást, og sef ..

Marías bauð mér í bíó á föstudaginn á Simpson ! Fórum á myndina í Lúxus-sal sem er aalveg æðislegt ! Nema hvað, myndin átti að byrja klukkan 00 (á miðnætti) en byrjaði ekki fyrr en klukkan 1 ! Fól var oðrið viirkilega pirrað, og byrjað að kvarta. Á meðan aðrir sátu í hláturskasti og drukku bjóra og hvítvín í tonnatali... Þrátt fyrir mikla bið og smá pirring útaf myndin var svo lengi að byrja var þetta frábært kvöld, og æðisleg mynd ! Held að ég hafi aaldrei hlegið svona mikið af bíómynd á þessu ári ! Mæli hiklaust með henni og sérstaklega að fara á hana í Lúxus.. Strákar takið upp budduna og bjóðið skvísunni ykkar í bíó á Lúxus - þið sjáið ekki eftir því. Ég lofa ! ;)

Næsta helgi ? Ég veit ekkert í minn haus hvað ég mun gera. Líklega fer ég ekki á AKureyri, þar sem fólk undir 24 er bannað á tjaldsvæðum.. Hvað er málið með það ? Ég bara spyr... Akureyringar munu bara tapa á þessu.. Þeir græða bara á að hafa blindfulla unglinga röltandi, ælandi, syngjandi og stundandi kynlíf út í runnum ! Paris Hilton væri ekki sátt núna...

Hvert er ungdómurinn að fara í dag? Ég bara spyr mig.. Litlar stelpur á fermingaraldri sem halda að þær geti valtað yfir allt og alla, og halda að þær séu flottastar á Akranesi og voðalega svalar að fá sér einn bjór og dettíða og fara í sleik við stráka,og jafnvel meira en það (sérstaklega sem eru komnir með bílpróf) það er víst aðal töffleikinn í dag... Mér finnst strákarnir á fermingaraldri töluvert skárri en margar þessar stelpur. Þær Hoppa uppí bílana hjá strákum og voðalega gaman.. Jesús minn eini. Hvernig var ég 13 ára? Þorði varla að kyssa strák.. Ég vona bara að þetta muni breytast, því þetta er svooo slæmt fyrir svona ungann aldur að haga sér eins og litlar hórur !

...Finnst samt stelpurnar í Rvk verri en hérna á Akranesi, og þó er ég farin að hallast af því að það verði fljótt að breytast. Þetta veldur mér hroll. Takið þetta til ykkar sem eiga !

Annars að pæla að skella þessu uppí kæruleysi, fagna sumarfrís og fá mér Doritos og nammigott, og hitta Röggu mína.. :*

np; Rolling Stones - Angie.

Ykkar,

Erla Dröfn.

 


» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 15
Síðast inni
Ég var síðast inni þann 1 nóvember
Myndir 2005